Ákærð fyrir morð á 13 ára pilti

Réttarhöld eru hafin yfir hjónum sem ákærð eru fyrir að hafa myrt þrettán ára gamlan son sinn með því að hafa bundið hann við tré tvær nætur í röð í í Norður Karólínu í síðustu viku.

Faðir drengsins, Brian McMillan, 41 árs, og eiginkona hans og stjúpmóðir drengsins, Sandra Elizabeth McMillan, 36 ára, sögðu lögreglu að unglingurinn hefði hegðað sér illa og var því látinn sofa úti, bundinn við tré sl. þriðjudagskvöld. Hann var látinn laus á miðvikudagsmorgun en bundinn á ný um kvöldið fyrir að hafa hegðað sér illa.

Síðdegis á fimmtudag fann stjúpmóðir hans drenginn látinn en ekki hefur verið gefið upp hver dánarorsök hans var. Unnið er að krufningu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu virðist sem hjónin hafi bundið piltinn við tréð með plastbandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert