Danskir karlmenn upplifa fremur en fólk af erlendum uppruna að þeim sé mismunað í dönsku skemmtanalífi samkvæmt nýrri könnun Catinét. Fólk af erlendum uppruna fær hins vegar fremur slíka tilfinningu í hversdagslífinu í Danmörku. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.
Samkvæmt könnuninni finnst 15% Dana þeir verða fyrir mismunum í dönsku skemmtanalífi en 10% fólks af erlendum uppruna finnst því vera mismunað.„Það fer í taugarnar á körlum að konur skuli hvað eftir annað fá ókeypis aðgang að skemmtistöðum og ókeypis drykki og að karlar njóti ekki sömu fríðinda. Það ver vel hægt að lít á slíkt sem mismunun,” segir Jacob Hougaard, borgarstjóri Kaupmannahafnar í innflytjenda og aðlögunarmálum.Samkvæmt könnuninni finnst 27% innflytjenda og 11% Dana þeir verða fyrir mismunun dags daglega.
„Það er mikilvægt að vera meðvitaður um þá mismunun sem fólk upplifir hversdagslega, þar sem hún skiptir viðkomandi meira máli” segir Hougaard.