Sex létu lífið í sjálfsvígsárás í Afganistan

Nato hermenn í Afganistan.
Nato hermenn í Afganistan. Reuters

Fimm óbreyttir borgarar, og einn Nato hermaður létu lífið í sjálfsvígsárás í Helmand héraði í Afganistan.  Þrjú börn voru á meðal þeirra látnu.

Árásarmaðurinn sprengdi sig upp þegar Nato hermenn fóru um Gereshk umdæmið í eftirlitsferð.  Árásin er gerð daginn eftir að Nato sagði talibana hafa verið hrakta frá útjaðri borgarinnar Kandahar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert