Forsetaframbjóðandi stjórnarandstöðunnar í Simbabve, Morgan Tsvangirai, tilkynnti á blaðamannafundi í dag í höfuðborg landsins, Harare, að hann væri hættur við framboðið. Sagði Tsvangirai að hann hefði ákveðið að hætta við framboðið vegna ofbeldisöldunnar í landinu og að ekki væri möguleiki á að kosningarnar yrðu trúverðugar.
„Við getum ekki beðið fólk um að kjósa þann 27. júní ef atkvæðið kostar það lífið. Við munum ekki lengur taka þátt í þessu ofbeldi sem hefur fylgt kosningunum," sagði Tsvangirai. „Mugabe hefur boðað til stríðs og við viljum ekki taka þátt í því stríði," bætti hann við.
Tsvangirai fékk flest atkvæði í fyrri umferð forsetakosninganna sem fram fóru í Simbabve þann 29. mars sl. en fékk ekki hreinan meirihluta og átti því að kjósa á milli hans og Roberts Mugabe, sem hefur verið forseti Simbabve frá því landið fékk sjálfstæði frá Bretum. Mugabe er 84 ára gamall.