Tveir drengir, tveggja og átta ára, létu lífið er kveikt var í heimili þeirra á Fjóni í Danmörku í nótt. Kveikt var í tveimur húsum í Tommerup Stationsby og Brobyværk í nótt. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.
„Það bjuggu þrír einstaklingar í raðhúsi sem kveikt var í í Teglhøjen í Tommerup, móðir og tvö börn hennar ,” segir Jack Liedecke, yfirmaður rannsóknadeildar lögreglunnar á Fjóni. „Móðirin var lögð inn á háskólasjúkrahúsið í Óðinsvéum með reykeitrun en við getum því miður staðfest að börnin létu lífið í eldsvoðanum."
Eldur frá húsinu læsti sig einnig í samtengd raðhús og þurfti íbúar þeirra að yfirgefa heimili sín.
Engin slys urðu á fólki í eldsvoðanum sem varð í kjölfar íkveikjunnar í Brobyværk en húsið brann til kaldra kola.Þrátt fyrir að einungis tíu kílómetrar séu á milli húsanna sem kveikt var í telur lögregla ekki að íkveikjurnar tengist.
Grunur er um að brennuvargurinn í Brobyværk tengist íbúum hússins. Ekki liggja hins vegar fyrir neinar vísbendingar um það hver stóð á bak við íkveikjuna i Tommerup Stationsby.