Barack Obama, forsetaframbjóðandi bandarískra demókrata hefur aukið forskot sitt á John McCain, frambjóðanda repúblíkana, samkvæmt nýrri skoðanakönnun bandarískra blaðsins Los Angeles Times.
Samkvæmt könnuninni nýtur Obama nú stuðnings 49% kjósenda en McCain nýtur stuðnings 37%.
Könnunin sýnir einnig að mikill meirihluti stuðningsmanna Hillary Clinton, sem barðist um það við Obama að verða forsetaefni flokksins, hafi ákveðið að styðja Obama. Segast einungis 11% þeirra ætla að kjósa McCain.