Skemmdarvargar í Orlando á Flórída sprautuðu málningu á 60 bíla í nótt og skrifuðu slagorð gegn Barack Obama á suma þeirra, m.a. þá fullyrðingu að hann neytti fíkniefna. Einnig var kynþáttaníð á sumum bílanna.
Skemmdarvargarnir skildu eftir spjöld á nokkrum bílum þar sem lýst er stuðningi við Hillary Clinton en lítið gert úr Obama og John McCain.
Málið er í rannsókn.