Lech Kaczynski, forseti Póllands, segist ekki ætla að skrifa undir Lissabon sáttmálann, þrátt fyrir að pólska þingið hafi staðfest hann. Kaczynzki sagði í viðtali við pólska dagblaðið Dziennik í dag að undirritun sáttmálans hefði enga þýðingu eftir að Írar höfnuðu sáttmálanum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Pólska þingið staðfesti sáttmálann í apríl, en forsetinn þarf samt sem áður að undirrita hann.
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, er ósammála forsetanum og segist sannfærður um að sáttmálinn þjóni hagsmunum Póllands. Í morgun sagðist Tusk vonast til þess að Kaczynski endurskoði þessa ákvörðun, að því er fram kemur á fréttavef BBC.