Barnaði 11 ára stúlku

Ítalska lögreglan handtók fyrr í vikunni 21 árs mann frá Kosovo sem giftist 11 ára serbneskri stúlku og eignaðist með henni barn. Hann var handtekinn vegna gruns um nauðgun og þrælahald en skv. ítölskum lögum er ekki leyfilegt að hafa mök við einstakling undir 14 ára aldri.

Rannsókn lögreglunnar í borginni Brescia hófst í kjölfar þess að stúlkan, sem nú er 12 ára, fæddi barn sitt á spítala í síðasta mánuði. Að sögn lögreglunnar samdi fjölskylda mannsins um hjónabandið við fjölskyldu stelpunnar og borgaði henni rétt rúmar 2 milljónir fyrir.

Stúlkan var flutt ólöglega til Ítalíu í fyrra. Hún og stúlkubarn hennar eru nú í vörslu þarlendra félagsmálayfirvalda. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert