Morðið á JonBenet Ramsey enn óupplýst

JonBenet Ramsey
JonBenet Ramsey

Saksóknari segir að útilokað sé að einhver úr fjölskyldu JonBenet Ramsey, sem fannst látin í kjallara heimilis síns árið 1996 hafi komið að morðinu. Lífsýni sanni það en ný DNA rannsókn var gerð nýverið. Samkvæmt upplýsingum frá saksóknaraembættinu í Boulder sýslu í Bandaríkjunum þá er morðinginn ekki tengdur stúlkunni fjölskylduböndum.  Morðið á stúlkunni, sem var sex ára er hún var myrt, er eitt frægasta morðmál í Bandaríkjunum undanfarna áratugi.

Í ágúst 2006 var John Mark Karr handtekinn  í Taílandi, grunaður um að hafa myrt stúlkuna en hann var kennari í heimabæ stúlkunnar er hún lést. Þegar hann var handtekinn sagðist hann hafa orðið stúlkunni að bana fyrir slysni. DNA rannsókn leiddi þá í ljós að hann hefði ekki komið að morðinu og var hann aldrei ákærður. 

Bandarískir fjölmiðlar höfðu á þeim tíma eftir fyrrverandi eiginkonu Karrs að hún hefði verið með honum á allt öðrum stað daginn sem morðið var framið og fleiri vísbendingar komu fram um að játningin stæðist ekki.

Þótt stúlkan væri aðeins sex ára hafði hún tekið þátt í mörgum fegurðarsamkeppnum og á myndum sem sýndar voru af henni var hún klædd sem fegurðardrottning og í tælandi stellingum. Sumar myndirnar þóttu jafnvel jaðra við barnaklám og málið vakti umræðu um fegurðarsamkeppnir fyrir börn.

Þegar lík JonBenet fannst þá hafði hún verið kyrkt og barin. Líkið fannst sjö klukkustundum eftir að móðir hennar fann miða þar sem fram kom að stúlkunni hefði verið rænt og yrði ekki sleppt nema gegn lausnargjaldi.

Grunur féll á foreldra stúlkunnar, John Ramsey, og eiginkonu hans, Patsy, sem dó úr krabbameini fyrir rúmum tveimur árum. Þau neituðu mánuðum saman að ræða við lögreglumenn sem reyndu að yfirheyra þau. Þau réðu einkaleynilögreglumenn til að rannsaka málið og sérfræðinga í almannatengslum til að verja þau í fjölmiðlunum.

Hefur saksóknaraembættið nú beðið Ramsey afsökunar enda ljóst að þau komu ekki nálægt morðinu, sem enn er óleyst, tæpum tólf árum eftir að það var framið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert