Fyrrum leiðtogi Suður-Afríku, Nelson Mandela, er níræður í dag. Mandela hyggst halda upp á afmælið heima hjá sér í Qunu, ásamt fjölskyldu sinni og tekur allt þorpið tekur þátt í hátíðarhöldum.
Mandela átti stóran þátt í að binda endir á aðskilnaðarstefnu í Suður-Afríku. Mandela var fangelsaður í 27 ár áður en hann varð fyrsti svarti leiðtogi landsins. Mandela fékk Nóbelsverðlaunin árið 1993, ásamt fyrrum forseta Suður Afríku FW de Klerk. Klerk lofar Mandela á afmælisdegi hans og segir hann eina af mikilvægustu mönnum tuttugustu aldarinnar.