Tvíburabræður, sem fæddust í Berlín í Þýskalandi í síðustu viku, hafa vakið mikla athygli en þeir hafa ekki sama hörundslit. Móðirin er fædd í Gana og faðirinn í Þýskalandi og bræðurnir líkjast hvor sínu foreldrinu.
Læknar segja, að það sé afar sjalfgæft að tvíburar foreldra af mismunandi kynþáttum séu svona ólíkir.