Ísraelskir hermenn skutu 9 ára gamlan palestínskan dreng til bana á Vesturbakkanum í dag. Ísraelsmennirnir hófu skothríð í þorpinu Nilin, vestur af Ramallah, þar sem verið var að mótmæla aðskilnaðarmúr Ísraelsmanna.
Andófsmenn segja, að Ísraelsmenn hafi tekið 25 hektara lands eignarnámi í þorpinu til að reisa múrinn. Þá hyggst Ísraelsher grafa jarðgöng þar sem aðalgatan inn í þorpið verður og ætlar að gæta þeirra. Friðarsamtök segja, að þetta muni hafa þau áhrif, að Nilin breytist í einskonar fangelsi.
Ísraelsmenn segja, að múrinn og önnur mannvirki séu nauðsynleg af öryggisástæðum.