Flugeldaæfing fyrir ólympíuleika

Íbúar í Peking, höfuðborg Kína, söfnuðust saman við Torg hins himneska friðar í miðborginni í gærkvöldi eftir að það kvisaðist út að lokaæfing yrði fyrir flugeldasýningu á setningarathöfn ólympíuleikanna.

Ólympíuleikarnir verða settir á nýja leikvanginum, Fuglshreiðrinu svonefnda, næsta föstudag en jafnframt verður mikil flugeldasýning á Torgi hins himneska friðar.  
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert