Pia Kjærsgaard, leiðtogi Danska þjóðarflokksins, hné niður eftir að hún hafði flutt ávarp á sumarfundi flokksins í dag. Var Kjærsgaard flutt á sjúkrahús með sjúkrabíl.
Að sögn talsmanns flokksins leið Kjærsgaard illa í morgun og kvartaði yfir höfuðverk.
Danski þjóðarflokkurinn styður minnihlutastjórn Anders Fogh Rasmussens, forsætisráðherra.