Kínverjar brugðust í dag við gagnrýni George W. Bush Bandaríkjaforseta með því að segja að enginn hafi rétt á að skipta sér af innanríkismálum erlendra þjóða.
Bush sagði í ræðu í Taílandi að Bandaríkjamenn mótmæltu því harðlega að kínversk stjórnvöld hneppi í varðhald fólk sem lætur til sín taka á pólitískum og trúarlegum vettvangi.
Qin Gang, talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins, sagði að viðhorf Bandaríkjamanna og Kínverja til mannréttinda- og trúmála væru ólík, en kínversk stjórnvöld væru algjörlega á móti því að þessi mál væru notuð sem átylla til afskipta af kínverskum innanríkismálum.
Bush er væntanlegur til Peking í dag þar sem hann verður viðstaddur setningarathöfn Ólympíuleikanna á morgun.