Rússneskur her hefur ráðist inn í Abhkasíu, sem eins og Suður-Ossetía er hérað í Georgíu en íbúar þar hafa sagt sig úr lögum við landið og vilja sjálfstæði. Fréttavefur Daily Telegraph hefur þetta eftir Mikhaíl Saakashvili, forseta Georgíu.
Þá segir rússneska fréttastofan RIA Novosti, að aðskilanaðarsinnar í Abkhasíu hafi hafið hernaðaraðgerðir gegn hersveitum Georgíumanna í héraðinu.