Fjórir voru skotnir til bana í ísbúð í Rüsselsheim, sem er 28 km suðvestur af Frankfurt í Þýskalandi, í dag. Ekki er vitað hvers vegna mennirnir voru skotnir. Að sögn lögreglu náðu byssumennirnir að flýja af vettvangi.
Lögreglan leitar nú mannanna, sem eru sagðir vopnaðir skammbyssum og hnífum.
Þrír karlmenn og ein kona eru sögð hafa fallið í árásinni.