Sex áströlskum fjallgöngumönnum var bjargað af fjallinu Cook, sem er hæsta fjall Nýja Sjálands, eftir að hríðarbylur fór þar yfir.
Hópurinn var fastur á fjallinu í tvo daga, og bjargað í dag með þyrlu. Leit hafði staðið yfir í tvo daga, en fresta þurfti björgunaraðgerðum vegna veðurs.