Sextán ára piltur stunginn til bana í Manchester

Sextán ára piltur var stunginn til bana í Manchester á Englandi í nótt.  Lögregla var kölluð að Moston Lane götu í Harpurhey hverfi eftir að pilturinn fannst í liggjandi í blóði sínu.  Pilturinn hafði verið stunginn einu sinni og lést á leiðinni á sjúkrahúsið.

Lögregla segir að rannsókn morðsins sé á frumstigi en telur að hugsanlega hafi verið vitni sem geti aðstoðað við rannsókn málsins, að því er fram kemur á fréttavef Sky.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert