Réðst á strætisvagnabílstjóra með hamri

Þrír særðust þegar kona réðist gegn strætisvagnabílstjóra með hamri í Toronto í Kanada.  Að sögn lögreglu fór konan um borð í rútuna og sakaði bílstjórann um að hafa ekki stoppað fyrir sér fyrr á leið vagnsins.  Konan tók svo upp hamar og sveiflaði honum í átt að bílstjóranum. 

Að sögn lögreglu náðu farþegar í vagninum að halda konunni niðri áður en lögregla kom á vettvang.  Bílstjórinn og tveir farþegar særðust í átökum við konuna, sem er 23 ára gömul.  Hún hefur verið ákærð fyrir vopnaða árás.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert