Þrír menn hafa verið handteknir í Colorado í Bandaríkjunum grunaðir um að hafa lagt á ráðin um að myrða Barack Obama, forsetaframbjóðanda demókrata.
Að sögn bandarískrar sjónvarpsstöðvar áformuðu mennirnir að skjóta Obama þegar hann flytti þakkarræðu sína á flokksþingi demókrata, sem hófst í Denver í gærkvöldi.
Lögregla lagði hald á vopn og fíkniefni þegar mennirnir voru handteknir á sunnudag.