Fer sínar eigin leiðir

Flokksþing repúblikana er nú hafið í Bandaríkjunum. McCain var kynntur á sviðið af öðrum repúblikönum, og einum demókrata, sem maður sem færi sínar eigin leiðir í stjórnmálum.

Margir tóku til máls og var ræðum vel tekið, með miklu lófataki og fagnaðarlátum. Nálægt ráðstefnuhöllinni þar sem þingið er haldið voru þó nærri tvö þúsund mótmælendur og lenti þeim saman við lögreglu. Mótmælendur eru þarna vegna göngu gegn fátækt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert