Obama gagnrýndur fyrir frjálslyndi

Fred Thompson, fyrrverandi öldungadeildarþingmaður fyrir Tennesse og leikari, hélt ræðu á flokksþingi Repúblikanaflokksins í gærkvöldi.

Fór hann mikinn og gagnrýndi Barack Obama  ákaft. Sagði Thompson meðal annars að Obama væri frjálslyndasti og reynsluminnsti frambjóðandi sem nokkurn tímann hefði verið í kjöri. Þá jós hann lofi á McCain.

Thompson er þekktur leikari og lék meðal annars í Law and Order.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert