Palin breytir um skoðun

Charles Gibson tekur viðtal við Sarah Palin fyrir ABC sjónvarpsstöðina.
Charles Gibson tekur viðtal við Sarah Palin fyrir ABC sjónvarpsstöðina. HO

Sarah Palin, varaforsetaefni Repúblikana, hefur breytt um skoðun hvað varðar hlut mannsins að loftlagsbreytingum. Í viðtali við ABC sjónvarpsstöðina segist hún ekki andmæla þeim vísindamönnum sem haldi því fram að loftlagsbreytingar séu að einhverju leyti af manna völdum.

Í viðtali sem birtist á fréttavefnum Newsmax sagði hún hins vegar að loftlagsbreytingar muni hafa meiri áhrif á Alaska en önnur ríki Bandaríkjanna vegna staðsetningar ríkisins. Í viðtali við dagblaðið Fairbanks fyrir tæpu ári sagðist Palin ekki vera einhver Al Gore, svarsýnis- umhverfissinni sem kennir manninum um breytingar þær sem hafa átt sér stað í loftslaginu.

Minnt á þetta í viðtali við ABC svaraði Palin: „Sýnið mér hvað ég hef einhvern tíma sagt að það sé fullkomlega sannað að ekkert það sem maðurinn hefur gert eða valdið hafi áhrif á loftslagsbreytingar."

Hins vegar segir forsetaframbjóðandi repúblikana, John McCain, að maðurinn beri ábyrgð á loftlagsbreytingum. Í viðtalinu við ABC sagði Palin að hún og McCain væru sammála um að grípa verði til aðgerða til þess að koma í veg fyrir frekari loftslagsbreytingar hvort sem ástæðuna megi rekja alfarið til mannsins eða hvort um eðlilega hringrás náttúrunnar sé að ræða. 

Bush-kenningin vafðist fyrir Palin

Palin hefur verið gagnrýnd fyrir þekkingarskort á utanríkismálum en hún segir að hún sé ekki ein um það af fyrri varaforsetaefnum. Palin segist eiga eftir að kalla til sérfræðinga sér til stuðnings og að hún treysti sér fullkomlega til þess að verða starfandi forseti ef til þess komi.  Í viðtalinu kom fram að hún hafi heimsótt bandaríska hermenn í Kúveit og Þýskalandi á síðasta ári auk þess sem hún hafi komið til Mexíkó og Kanada. Önnur ríki hefði hún ekki sótt heim um ævina.

Svo virðist sem Palin sé ekki vel heima í kenningum George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, um hvernig stöðva eigi framgang hryðjuverkamanna þannig að réttlætanlegt sé að fyrra bragði og í varnarskyni að ráðast gegn hryðjuverkamönnum og óvinveittum ríkjum, sem ráða yfir kjarnorku-, efna- eða sýklavopnum. Sjálf siðmenningin kalli á slíkar varnir. Spurð að því hvort hún tæki undir „Bush-kenninguna" þá spurði hún spyrilinn við hvað hann ætti.

Hann neyddist því til þess að útskýra fyrir henni hver kenning Bush er en hann varpaði henni fram í september 2002, eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 en áður en Bandaríkin gerðu innrás inn í Írak í mars 2003.

Hluti viðtalsins við Palin var birt í gærkvöldi en síðari hlutinn verður birtur á ABC sjónvarpsstöðinni í kvöld.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert