Fleiri lík finnast í Tijuana

Níu lík til viðbótar hafa fundist í borginni Tijuana á landamærum Mexíko og Bandaríkjanna en fimmtíu lík  fólks, sem talið er tengjast fíkniefnasölu, hafa fundist á svæðinu á einni viku. Þetta kemur fram á fréttavef CNN.

Flest virðist fólki hafa verið tekið af lífi með skoti í höfuðið en einnig er nokkuð um að lík hafi fundist afhöfðuð.Aftökum innan fíkniefnaheimsins hefur fjölgað mjög á svæðinu eftir að lögregluyfirvöld í Mexíkó réðust í hertar aðgerðir gegn fíkniefnahringjum þar fyrir tveimur árum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert