Tilraun Joe, bróður bandaríska forsetaframbjóðandans Johns McCains, til að segja brandara á kosningafundi í Virginíu, mæltist ekki sérlega vel fyrir.
„Ég hef búið hér í að minnsta kosti áratug og þar áður var ég oft í annaðhvort Arlington eða Alexandríu, uppi í kommúnistalandi," sagði Joe McCain á fundi í Loudonsýslu í Virginíu í gær.
Hann baðst síðan afsökunar en talsvert var hlegið að ummælunum á fundinum að sögn fréttavefjar Washington Post.
Repúblikanar hafa jafnan getað treyst á fylgi í Virginíu í forsetakosningum en nýlegar skoðanakannanir benda hins vegar til þess, að Barack Obama njóti þar meira fylgis en John McCain um þessar mundir.
Nokkur úthverfi Washingtonborgar í Norður-Virginíu hafa vaxið hratt og þar njóta demókratar mun meira fylgis en annarstaðar í ríkinu. Einn þessara staða er Arlington í Virginíu þar sem John McCain á hús.
„Þetta var misheppnuð tilraun Joe McCains til að segja brandara," sagði Gail Gitcho, talsmaður framboðs McCains. „John McCain og Sarah Palin einbeita sér að því að vinna stuðning kjósenda í Norður-Virginíu og skilja mikivægi þess svæðis ef sigur á að vinnast í ríkinu öllu.