Dómstóll í Glostrup í Danmörku hefur dæmt tvo 22 ára gamla múslima í fangelsi fyrir að leggja á ráðin um hryðjuverkaárásir.
Dómstóllinn fann mennina seka um það í morgun og dæmdi í dag Hammad Khürshid, danskan ríkisborgara af pakistönskum uppruna, í 12 ára fangelsi og Afganann Abdoul Ghani Togi í 7 ára fangelsi og vísaði honum jafnframt úr laandi. Khürshid hefur þegar áfrýjað dómnum.
Saksóknarar sögðu ljóst, að mennirnir tveir hefðu lagt á ráðin um hryðjuverkaárásir. Mennirnir voru handteknir í september í fyrra þegar lögreglan réðist inn í íbúð í fjölbýlishúsi við Glasvej í Kaupmannahöfn en mennirnir höfðu þá gert tilraun með heimatilbúið sprengiefni.