Skoðanakannanir Gallup í 70 löndum í Afríku, Asíu, Evrópu og Suður Ameríku, sýna að Barack Obama, forsetaframbjóðandi bandarískra demókrata, er fjórum sinnum vinsælli utan Bandaríkjanna en John McCain, forsetaefni repúblíkana. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.
Samkvæmt könnununum nýtur Obama nýtur meiri stuðnings í 64 landanna en McCain nýtur einungis meira fylgis í Kambódíu, Georgíu, Laos og á Filippseyjum. Vinsælastur er Obama í Kenýa en hann á ættir að rekja þangað.
Einnig var spurt hvort fólk teldi að niðurstaða forsetakosninganna í Bandaríkjunum myndi hafa mikil áhrif í heimalandi viðkomandi. 31% sagðist telja áhrifin mikil en 21% sagðist telja þau lítil sem engin.
Hæst er hlutfall þeirra sem telja úrslitin skipta máli í Evrópu en þar telja 65% þátttakenda úrslitin skipta miklu máli fyrir heimaland sitt. Asíubúar telja áhrifin hins vegar minnst.
Það dregur þó nokkuð úr áreiðanleika kannananna að 62% aðspurðra neituðu að svara.