Lögregla í Bandaríkjunum handtók í dag tvo karlmenn, 18 og 20 ára, sem áformuðu að ræna byssuverslun og skjóta síðan Barack Obama, forsetaframbjóðanda bandarískra demókrata, til bana auk eins margra litaðra manna og mögulegt væri.
Mennirnir, sem sagðir eru tilheyra samtökum nýnasista, voru handteknir í Jackson í Tennessee. Í bíl þeirra voru margar byssur, þar á meðal afsöguð haglabyssa.