Forsetaframbjóðandinn John McCain sýndi það og sannaði í gærkvöldi að hann kann að gera grín að sjálfum sér. Hann kom fram í bandaríska gamanþættinum Saturday Night Live en síðustu dagarnir hafa verið langir og strangir hjá McCain þar sem gengið verður til kosninga eftir tvo daga.
Þátturinn byrjaði á grínatriði með honum og Tinu Fey í hlutverki Söruh Palin, varaforsetaframbjóðanda McCain. Hann kom fram í hlutverki kynnis á sjónvarpsmarkaðsrás og sagði það einu rásina sem hann hefði efni á að birtast á, en fyrir skömmu birti Barack Obama rándýra, hálftíma auglýsingu á stærstu sjónvarpsstöðvunum.