Bandarískar sjónvarpsstöðvar spá því að John McCain hafi sigrað í Suður-Karólínu og fengið 8 kjörmenn þar. Hafa bandarískir fjölmiðlar nú spáð fyrir um úrslit í fjórum ríkjum og sigraði McCain samkvæmt því í þremur þeirra kominn með 21 kjörmann. Obama sigraði í einu og er með 3 kjörmenn.