Bandaríkjamaðurinn Thomas Beattie, „ófríski karlmaðurinn“ sem ól barn í júní, er barnshafandi aftur.
Thomas Beattie fæddist kona en fyrir áratug lét hann breyta sér í karlmann. Hann hélt þó eftir legi og öðrum æxlunarfærum til að geta eignast börn.
Beattie sagði í viðtali við ABC-sjónvarpið að barnið ætti að fæðast í júní. Hann kvæntist fyrir fimm árum og hjónin keyptu sæði frá sæðisbanka til að eignast börnin.