Abdullah konungur Saudi Arabíu, Hu Jintao forseti Kína og George W. Bush Bandaríkjaforseti búa sig undir hópmyndatöku við lok fundarins í Washington í dag.
Reuters
Leiðtogar 20 iðnríkja og stórra þróunarlanda heimsins, sem fundað hafa í Washington síðustu daga, ætla að láta setja saman lista yfir fjármálastofnanir sem ógna mest fjármálalífi heimsins. Þetta hefur AFP fréttastofan eftir heimildamanni.