Stálu tölvum í höfuðstöðvum lögreglunnar

Höfuðstöðvar lögreglunnar í Osló
Höfuðstöðvar lögreglunnar í Osló

Þjófar létu greipar sópa í höfuðstöðvum norsku lögreglunnar í Ósló aðfaranótt sunnudags. Þjófarnir brutu sér leið inn um kjallaraglugga og gengu síðan út með nokkrar af tölvum lögregluembættisins.

Innbrotið uppgötvaðist nokkrum klukkutímum seinna. Norska lögreglan viðurkennir að þjófavörnum sé ábótavant. Rannsókn á innbrotinu stendur yfir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert