Rússneskir hermenn í varðstöð nálægt Suður-Ossetíu, skutu af byssum nálægt bílalest forseta Georgíu og Póllands, sem voru á ferð á svæðinu. Engan sakaði, að sögn talsmanns forsetaembættis Georgíu.
Míkheil Saakashvili, forseti Georgíu, og Lech Kaczynski, forseti Póllands, voru í heimsókn í varðstöðinni við Akhalgori þegar Rússarnir hófu skothríðina. Forsetarnir forðuðu sér strax.
Óljóst er hvort skotið var í átt að bílalestinni eða í aðra átt, að sögn Nato Partskhaladze, talskonu Saakashvilis.