Mótmælin á Austurvelli undanfarnar helgar og átökin við Lögreglustöðina við Hverfisgötu sl. laugardag hafa vakið töluverða athygli í erlendum fjölmiðlum. Á vefsíðunni Drudge report er tengla á fréttir af mótmælunum að finna efst á síðunni.
Þar er m.a. vísað í vefsíðu Newsradio 1290 WJNO og France 24, sem segir þúsundir Íslendinga hafa tekið þátt í ofbeldisfullum mótmælum í Reykjavík.