Tveir skotnir til bana í leikfangaverslun

Árásin átti sér stað í Toys
Árásin átti sér stað í Toys "R" Us verslun í Palm Desert í Kaliforníu. AP

Tveir létust í skotárás í verslun Toys "R" Us í borginni Palm Desert í Kaliforníu í Bandaríkjunum í dag. Árásin átti sér stað á svokölluðum Svörtum föstudegi, en þá fjölmenna Bandaríkjamenn í verslanir til að gera góð kaup.

Að sögn lögreglu barst tilkynning um skotárásina kl. 11:35 að staðartíma. Um 20 manns hlupu út úr leikfangaversluninni og leituðu skjóls í líkamsræktarstöð sem er gegnt versluninni.

Nokkrir hafa verið handteknir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert