OJ bíður refsingar

O.J. Simpson við réttarhöldin í október.
O.J. Simpson við réttarhöldin í október. POOL

Leikarinn og ruðningskappinn OJ Simpson á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi en hann verður í dag dæmdur til fangelsisvistar fyrir mannrán og vopnað rán. Hann var fundinn sekur um alls sex ákæruliði í október en hefur síðan verið haldið í gæsluvarðhaldi.

Simpson var dæmdur fyrir að ræna tveimur mönnum sem sérhæfðu sig í sölu íþróttaminjagripa og halda þeim á hótelherbergi. Simpson hélt því fram að hann hefði verið að ná í gripi sem stolið hafði verið af honum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert