Tugir ungmenna, bæði fótgangandi og á mótorhjólum, hafa ráðist á lögreglustöð í Aþenu, höfuðborgar Grikklands, í kvöld. Einnig var kveikt í stjórnarbyggingu í miðborginni og tveir bankar hafa verið skemmdir. Lögregla hefur beitt táragasi gegn fólkinu.
Fyrr í kvöld var víða kveikt á kertum í borginni til að minnast þess að vika er liðin frá því lögreglumaður skaut 15 ára gamlan dreng til bana. Í kjölfarið urðu óeirðir sem hafa verið daglegt brauð síðan, bæði í Aþenu og öðrum helstu borgum landsins.
Ungmennin köstuðu að minnsta kosti einni bensínsprengju að lögreglustöð í Exarchiahverfi í borginni í kvöld þar sem unglingurinn var skotinn til bana. Þau brutu síðan gangstéttarhellur og hlóðu götuvirki með grjóti og brennandi ruslatunnum.
Róstusamt hefur einnig verið í Þessalóníku, næststærstu borg Grikklands, í kvöld.