Barack Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, kynnti val sitt á helstu embættismönnum í orku- og umhverfismálum á fréttamannafundi í kvöld. Hann hét því að Bandaríkin myndu gegna forystuhlutverki í baráttunni gegn loftslagsbreytingum eftir að hafa dregið lappirnar í átta ára valdatíð George W. Bush.
Nóbelsverðlaunahafinn og eðlisfræðingurinn Steven Chu verður orkumálaráðherra. Obama hefur því valið sérfræðing í endurnýjanlegum orkugjöfum til forystu í loftslagsmálum og í þeirri viðleitni að gera Bandaríkin óháð olíuinnflutningi.
Lisa Jackson, skrifstofustjóri ríkisstjóra New Jersey, verður yfirmaður Umhverfisverndarstofnunar Bandaríkjanna, EPA.
Carol Browner, sem var háttsettur embættismaður í EPA í forsetatíð Bills Clintons, fær það hlutverk að hafa yfirumsjón með baráttunni gegn loftslagsbreytingum í heiminum.
Nancy Sutley, sem hefur verið á meðal helstu ráðgjafa Obama, verður formaður umhverfisverndarráðs Hvíta hússins.