Jarðskjálftinn sem varð í Svíþjóð snemma í morgun var svo öflugur að byggingar skulfu í Málmey og fréttir hafa borist af því að byggingar í Kaupmannahöfn hafi skolfið.
Reynir Böðvarsson á jarðskjálftastofnuninni í Uppsölum telur að skjálftinn hafi verið á bilinu 4,5-5 á Richter og að hann sé sá öflugasti, sem orðið hafi þar í landi frá árinu 1904. Upptök skjálftans voru um 60 kílómetra austur af Málmey og 9 kílómetra norðaustur af Ystad.
Talið er víst að eftirskjálftar muni finnast. Ekki er vitað um eignatjón.