Íraski blaðamaðurinn sem kastaði skó í átt að Bush Bandaríkjaforseta sætir nú yfirheyrslu rannsóknardómara. Yfirheyrslan hófst klukkan sjö í morgun að íslenskum tíma.
Sagt er að Muntazer al-Zaidi hafi hringt í einn bræðra sinna í gær til að segja honum að hann ætti að mæta fyrir rannsóknardómara og að hann hefði beðið sjónvarpsstöðina sem hann vinnur hjá að senda þrjá lögfræðinga sér til varnar.