Til átaka kom á milli lögreglu og mótmælenda í miðborg Aþenu, höfuðborgar Grikklands, í morgun eftir að hópur þátttakenda í friðsamlegri mótmælagöngu hóf að kasta seinum og bensínsprengjum í lögreglu og byggingar. Þetta kemur fram á fréttavef Sky.
Þá reyndu mótmælendur að kveikja í jólatré í miðbænum og þurftu vegfarendur í jólainnkaupum að hlaupa í skjól vegna átakanna. Trénu, sem reynt var að kveikja í, var komið fyrir í stað trés sem mótmælendur kveiktu í fyrr í vikunni.
Um 7.000 manns tóku þátt í mótmælagöngunni sem farin var í mótmælaskyni við umdeildar efnahagsumbætur grísku stjórnarinnar og meint mistök hennar við að skýla landinu frá alþjóðlegu fjármálakreppunni.
Mótmælasamkomur hafa nú farið fram daglega í Aþenu í þrettán daga en mótmælin brutust fyrst út eftir að lögregla skaut hinn fimmtán ára Alexandros Grigoropoulos til bana.