Yfirvöld í Ísrael eru nú að hefja alþjóðlega áróðursherferð til að afla stuðnings við umfangsmiklar herðnaðarðgerðir á Gasasvæðinu í kjölfar þess að Hamas samtökin, sem stjórna svæðinu riftu sex mánaða vopnahléssamningi við Ísrael. Þetta kemur fram á fréttavef Ha’aretz.
Yfirvöld í Ísarael eru nú að hefja alþjóðlega áróðursherferð til að afla stuðnings við umfangsmiklar herðanaðarðgerðir á Gasasvæðinu í kjölfar þess að Hamas samtökin, sem stjórna svæðinu riftu sex mánaða vopnahléssamningi við Ísrael. Þetta kemur fram á fréttavef Ha’aretz.
Hefur Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, gefið fulltrúum ísraelskra stjórnvalda fyrirmæli um að kynna og leita stuðnings við hugsanlegar hernaðaraðgerðir gegn herskáum Palestínumönnum á Gasasvæðinu, bæði í Bandaríkjunum og innan ríkja Evrópusambandsins.
Þá hefur sendiherra Ísraels, hjá Sameinuðu þjóðunum verið falið að gera Ban Ki Moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna og öryggisráði stofnunarinnar grein fyrir því að Ísraelar muni ekki sitja aðgerðalausir haldi herskáir Palestínumenn áfram að gera flugskeytaárásir frá Gasasvæðinu yfir landamærin til Ísraels.