Yfirmaður uppreisnarmanna í Gíneu, Moussa Dadis Camara, hefur lýst því yfir að hann sé nýr forseti landsins eftir lát forseta landsins, Lansana Conte. Camara leiddi valdarán hersins í landinu og segist hafa víðtækan stuðning meðal íbúa landsins.
Lansana Conte hafði verið forseti Gíneu í 24 ár en lést í fyrradag 74 ára að
aldri eftir langvarandi veikindi að sögn yfirvalda. Ekki er vitað um
dánarorsök, en Conte mun hafa verið keðjureykingamaður auk þess sem
hann glímdi við sykursýki. Að sögn fréttaskýrenda hafði verið búist við
því að herinn reyndi að ná völdum þegar Conte félli frá þar sem hann
hefði í auknum mæli reitt sig á herinn til að halda völdum. Eftir að
heilsu Conte tók að hraka til mikilla muna síðustu fimm árin þótti
óljóst hver færi í raun með völdin og ríkisstjórnin var því sem næst
óstarfhæf.