Kona barin til bana á Kanaríeyjum

Bresk kona á þrítugsaldri lést af sárum sínum í dag eftir að hafa verið barin með hafnarboltakylfu í íbúð sinni á Amerísku ströndinni, Playa de las Americas, á Tenerife. Hefur unnusti konunnar verið handtekinn grunaður um verknaðinn, samkvæmt frétt Sky. Hann heldur því fram að hún hafi hringt í hann aðfararnótt aðfangadags og beðið hann um að koma þar sem henni liði ekki vel.

Hann fór í íbúð hennar og er talið að þau hafi rifist heiftarlega. Var lögregla kölluð til af nágrönnum og fann konuna stórslasaða eftir barsmíðar. Var hún flutt á sjúkrahús og lést af sárum sínum í dag. Var unnustinn handtekinn í kjölfarið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert