Að sögn taílenskra yfirvalda er 61 látinn eftir að eldur kom upp á næturklúbbi í Bangkok á nýársnótt. Óttast er að tala látinna fari hækkandi þar sem margir hinna særðu eru enn í lífshættu. Af 89 særðum eru 26 enn á gjörgæslu.
Lögreglan rannsakar enn upptök eldsins sem kom upp á vinslæum næturklúbbi í Ekkamai-hverfi, mikill mannfjöldi var í klúbbnum á nýársnótt.