Ísraelski landherinn réðst fyrir skemmstu inn á Gaza-svæðið. Landherinn hafði verið í viðbragðsstöðu á landmærunum í um sólarhring áður en hann réðst til atlögu. Samkvæmt fréttum AP-fréttastofunnar er talið að um tíu þúsund ísraelskir hermenn séu við landamærin.
Hörð átök hafa verið á Vesturbakkanum undanfarna viku en samkvæmt nýjustu tölum AFP-fréttastofunnar er talið að um 460 Palestínumenn hafi látist. Þar af eru 75 börn. Árásir á þeim tíma höfðu að mestu verið loftárásir en einnig er að talið að sérsveitir ísraelska hersins hafi stutt við aðgerðir á landi niðri.
Ísraelski herinn hefur haldið uppi hörðum árásum á hendur Palestínumönnum. Forsvarsmenn hersins hafa svarað því til að árásirnar séu liður í því að lama Hamas-hryðjuverkasamtökin. Einkum er nú einblínt á að koma í veg fyrir að flugskeytum sé skotið til Ísraels, samkvæmt fréttum Reuters.
Um 1,5 milljón manna býr á Gaza-svæðinu þar af eru um 900 þúsund manns sem eru flóttamenn.