Fimm börn létu lífið í tveimur árásum Ísraelsmanna á skotmörk við Gasaborg í nótt og morgun, að sögn palestínskra sjúkraflutningamanna.
Þrjú börn létu lífið í skriðdrekaárás í Zeitun og tvö í stórskotaárás frá sjó á Shati, að því er AFP fréttastofan hefur eftir Moawiya Hassanein, yfirmanni sjúkraflutningaþjónustu stjórnvalda á Gasa.